Ég ætlaði bara að minna alla lesendur fjær og nær á tónleikana sem verða núna á sunnudaginn 24. apríl kl. 20 í Langholtskirkju. Þar mun Söngsveitin Fílharmónía flytja verkið "Carimina Burana" eftir Carl Orff. Alveg stórgott verk.
Það spillir ekki fyrir að
Hallveig syngur sópranhlutverkið.
Þeir sem vilja fá miða hjá mér þurfa bara að hafa samband og ég mun taka þá frá. Miðaverðið er 2100.- ef verslað er við Brynkuna en er 2500.- við innganginn!
Vonast til að heyra frá ykkur sem flestum og sjá helst enn fleiri á sunnudag.
Já.. og fyrir þá sem ekki komast á sunnudaginn.. þá er það afsökun sem ekki er tekin gild vegna þess að tónleikarnir eru endurteknir á þriðjudagskvöldið 26. apríl kl. 20 á sama stað!!!