laugardagur, mars 10, 2007 

Laugardagur...

...Þarf ég að segja meir?

En svona til að segja eitthvað þá fórum við Camilla með Aaa (sem þýðir afi hér á heimilinu) að gefa öndunum og skoða stóru bátana við Hafnarfjarðarhöfn á meðan Jón Einar/pabbi var að "dlææ" sem þýðir að læra! Það var ROSALEGA gaman! Við vorum aaaa við endurnar og sögðum VÁÁÁ af mikilli innlifun yfir öllum stóru bátunum! Síðan fórum við inn á leikvöllinn við Lækjarskóla og róluðum, vógum salt, príluðum og duttum á bólakaf í drullupoll! Þá var tekin ákvörðun um að fara að koma sér heim á leið!

Sem sagt, ljómandi dagur! -Sem átti reyndar að nota í að eiga eins og eitt barn... en það hlýtur að fara að koma!

föstudagur, mars 09, 2007 

Föstudagur...

...Oooooog... ekkert enn!!

Nýjar fréttir eru þær að ég á að hitta lækninn á mánudag til að ræða það hvort ekki eigi bara að setja þetta allt saman af stað. Ljósmóðirin mín hefur ekki samvisku í að láta mig bumbulínast mikið lengur! Henni þykir nóg komið og heldur að læknirinn hljóti að taka undir það á mánudaginn!

Annars er það að frétta að hér á heimilið var keypt gríðarlega merkileg græja í dag. Græjan er rafknúin og það eru sjálfsagt ekki margir sem hefðu haldið að það væri þörf á slíkri græju inn á þetta heimili. Nú skora ég á lesendur að geta upp á því hvernig græju um ræðir!
Svarið felst í vísbendingum hér á síðunni!

fimmtudagur, mars 08, 2007 

Fimmtudagur...

...og enn ekekrt að gerast!

Ég er reyndar ágætlega sátt við það. Mamma átti afmæli í dag og persónulega vil ég að barnið eigi bara sinn eigin afmælisdag!

Nú hlýtur þetta að fara að verða búið!!

Annars er það dálítið skondið að vera í þeirri aðstöðu að móðgast ekkert heldur taka því fagnandi þegar fólk kveður mann með orðunum "og svo vona ég að ég hitti þig ekki í næstu viku"!!! Merkilegt!

miðvikudagur, mars 07, 2007 

Miðvikudagur

...og ekkert að gerast á neinum vígstöðvum!

Næsti tími hjá lækninum var færður fram á mánudag þannig að ég bíð bara... (Bölv og ragn)

mánudagur, mars 05, 2007 

Leyndarmál laugardagsins!

Nú er laugardagurinn sem sagt liðinn og tími til kominn til að segja frá "leyndarmálinu" og hinum nýuppgötvaða hæfileika húsmóðurinnar á völlunum!!!

Þannig er sem sagt að hér á heimilinu hefur eiginlega verið framhald á því sem var byrjað á þann 17. febrúar síðastliðinn. Þ.e. gæsun Ellu Maju. Hún er jú að fara að gifta sig konan og því fylgir í öllum tilfellum maki! Í þessu tilfelli er það hann David. Hann var sem sagt steggjaður á laugardaginn og kom það í hlut míns maka að útvega víkingabúning á stegginn. Það hefði svo sem ekki verið vandamál nema fyrir þá staðreynd að víkingabúningurinn er EINI búningurinn sem hefur ekki skilað sér á búningaleiguna sem Jón Einar leitaði uppi! Nú, í búðinni HókusPókus á Laugarvegi er ágætt úrval grímubúninga á fullorðna, svona ef þeir eru algerir meðalmenn/konur á hæð og breidd. -Og allir sem hafa hitt David vita að þar fer enginn meðalmaður! Þannig að það var náttúrlega bara eitt að gera í stöðunni.... Að fara í efnabúð og versla efnivið í víkingabúning!!! Þannig að ég gerði það! Látum það nú vera þó svo ég hafi verslað efnið.... EN... það sem er náttúrlega lyginni líkast (og undir það hljóta allir að taka sem mig þekkja) að ég skuli hafa sniðið víkingamussu, saumað hana saman, saumað fellda skikkju (vá! sjáiði fagorðið, felld!!), fest skikkjuna við mussuna og saumað belti á hana líka!!! OG... það sem er nú kannski merkilegast er að þetta var bara fjári flottur búningur!!! Og ég get sem sagt borið vitni um það að David leit ekkert smá flott út í þessu öllu saman!

Þessi aðgerð, þ.e. að sauma mussuna, hefur sem sagt skapað það ástand hér á heimilinu að hér er ALLT loðið! (Víkingamussan er sem sagt úr loðnu efni.) Jón Einar var fenginn til að leika mátunargínu inni á baði þar sem gripurinn var sniðinn og saumaður að mestu. Camilla snúllubarn er ekki orðin nægilega gömul til að vera treyst fyrir íbúðinni þegar foreldrarnir loka sig inni á baði ásamt svakalega loðnu efni sem fer SVAKALEGA úr hárum þegar það er klippt, var inni á baði líka. Henni þótti þessi iðja foreldranna gríðarlega skemmtileg og fannst upplagt að velta sér uppúr öllu loðinu, fara undir víkingamussuna og almennt gera allt sem í hennar valdi stóð til að safna loðinu á sig! Þannig að þegar hún síðan slapp út af baðherberginu þá hljóp hún hér um eins og lítil bifukolla og dreifði loðinu um alla íbúð! Þannig að fyrir þá sem halda að við höfum fengið okkur kött sem er illa haldinn af hárlosi þá skýrist það hér með að um víkingamussu er að ræða!

Berglind
Ella Maja
Hallveig
Júlíana

Átakið -er í lööööngu fríi

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com