föstudagur, september 19, 2003 

Fyrsta blogg með titli...

Jæja, nú er ég enn og aftur komin hér til að reyna að spjalla aðeins um lífsins gagn og nauðsynjar...
Kannski má segja að hvert blogg sé pínulítil örsaga! Stundum hafa þær upphaf og endi en stundum er bara eins og gripið sé inn í miðja frásögn...

Í þetta skiptið verður þó ekki um neina sögu að ræða... Hér var meiningin að koma með langa og afskaplega leiðinlega skammarræðu... en þar sem ég geri ekki ráð fyrir því að neinn nenni að lesa slíkt hef ég ákveðið að láta stutt og kjarnyrt skilaboð frá mér...!!

Mínir kæru vinir.. ég verð að segja að mér þykja undirtektir við síðasta fyrripart afspyrnu léleg... Það getur ekki verið að skáldagyðjan og blessaður andinn hafi flutt af landinu þó svo að hér hafi lítið verið bloggað í sumar...
Því fáið þið annað tækifæri nú til að svara eftirfarandi fyrriparti:

Stattu ekki þarna með þrjóskusvip
það þýðir ekkert að væla


Og botniði nú...

Berglind
Ella Maja
Hallveig
Júlíana

Átakið -er í lööööngu fríi

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com