laugardagur, maí 03, 2003 

Ég vil endilega benda aftur á síðuna Parlamentið og samnefnda krækju hér til hliðar. Inni á þeirri síðu er búið að koma upp ágætu krækjusafni á hinar ýmsu síður tengdar stjórnmálum. Auðvelt ætti því að reynast að kynna sér fulltrúa þeirra flokka sem maður hefur í hyggju að kjósa í alþingiskosningum næstu helgar. Þar er einnig að finna skoðanakönnun sem, hingað til, hefur verið ansi einsleit svo ekki sé meira sagt!!! Ég get einnig mælt með spurningakeppninni með léttu pólitísku ívafi sem gestir síðunnar geta tekið þátt í.

miðvikudagur, apríl 30, 2003 

Jess!!! Ég hef ennþá gömlu góðu töfrana!! Það skal ekki bregðast... Ég setti sumardekkin undir fyrir síðustu helgi og nú kæru vinir er kominn snjór niður í byggð!!! Ég hefði kannski átt að sleppa því að setja vetrardekkin undir í haust. Þá hefði kannski komið vetur!!
En hvað sem því líður þá eru nú aðeins um 5 vikur eftir af þessu skólaári og þá tekur sumarið við með betri tíð. Þá verður líka komið að því að undirrituð flytji í höfuðstaðinn eftir 4 ára útlegð!! Ójá kæru vinir, nú er Brynkan búin að fjárfesta í íbúð, búin að undirrita kaupsamninginn og er þar með orðinn löggiltur íbúðareigandi. Það verður að segjast að það er nú notaleg tilfinning eftir allt flakkið að vera loksins á leiðinni í sitt eigið húsnæði þar sem ég get bara ráðið því hvernig ég mála, hvar ég negli alla þá nagla sem ég vil negla, bora þau göt sem þarf og ekki síst, ræð því hvenær ég flyt næst!!! Og trúið mér, það verður bið á því kæra fólk!! Á undanförnum 5 árum verð ég búin að flytja (með fyrirhuguðum flutningum) alls 9 sinnum... Það er nokkuð gott svona miðað við allt og allt!!
Spenningurinn er sem sagt farinn að grafa um sig hjá mér sem kannski sýnir sig best á því að ég er (að sjálfsögðu) búin að ákveða hvernig veggir íbúðarinnar verða á litinn, aðeins farin að koma húsgögnunum fyrir svona í kollinum... svona farin að sjá fyrir mér hvar þetta og hitt fer best inni í stofu og er að reyna að rifja upp hvort gardínurnar sem ég er með í stofunni passi þarna inn!!
Svo er náttúrlega eitt sem ekki má gleyma sem er mikið spennuefni!!! SAUMAKLÚBBARNIR... ég hef ekki komist í saumaklúbb, ef frá er talinn jólaklúbburinn sem Begga hélt um jólin, í að verða 4 ár!!!!!! Og... NEI... ég hef ekkert lært meira að sauma stúlkur.. mig þyrstir bara í slúður og allar frábæru veitingarnar sem ég veit að eru alltaf á boðstólnum!!!! Ekki nóg með það heldur get ég nú farið að halda saumaklúbb fyrir ykkur.. Það væri þá í fyrsta skiptið síðan árið 1998... sem sagt Brynkan hefur ekki haldið saumaklúbb síðan á síðustu öld!!! Er ekki kominn tími til?????

sunnudagur, apríl 27, 2003 

Ég má til með að benda þeim sem lesa þessa pistla mína og hafa áhuga á pólitík eða öllu heldur pólitískum vangaveltum á nýja krækju hér til hliðar sem nefnist Parlamentið. Þarna er sem sagt snillingurinn og sjálfstæðismaðurinn hann bróðir minn að velta vöngum yfir kosningaslagnum hérna heima og áherslunum sem menn ~og konur, beita í honum.

Berglind
Ella Maja
Hallveig
Júlíana

Átakið -er í lööööngu fríi

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com