fimmtudagur, október 14, 2004 

Nöldurblogg...

Þessi pistill er tileinkaður nöldri!!!

Ég hef ákveðið að nöldra yfir bloggleti vina minna!! Ég tel það vera siðferðislega skyldu þeirra að bæði blogga reglulega sem og að kommenta á blogg annarra vina sinna til að vinir þeirra sem eru í verkfalli og eyða þ.a.l. ótrúlega miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn, hafi nóg að lesa!
Ég gæti eytt ótrúlega mörgum og löngum orðum í þetta nöldur en illu er best aflokið þannig að ég hef ákveðið að hafa nöldurbloggið stutt í þetta sinn. -Og svo geri ég náttúrlega eins og allir kennarar þessa dagana... ég skora á alla sem reka hér inn nefið að bæði skilja eftir sig ákaflega skemmtileg og helst löng komment!!

mánudagur, október 11, 2004 

Meira verkfall...

Frábært.. nú á sem sagt ekki að talast við fyrr en á miðvikudaginn!!! Ljómandi... eða þannig sko!! Ég fer nú að verða uppiskroppa með verkefni hérna heima þannig að það fer að verða mjööööög aðkallandi að semja... svona til að undirrituð haldi geðheilsunni!!
Sem dæmi um hversu geðinu hefur hrakað undanfarið þá má nefna það að ástæðan fyrir tímasetningu þessa pistils er sú að ég er búin að sitja inni í stofu að SAUMA!!! Já.. trúið þið því góðir hálsar? Ég er svo gersamlega búin að tapa því hérna í verkfallinu að saumaskapurinn er kominn upp á borðið!! VÁ... þá er nú ástandið orðið alvarlegt!!

Annars er helgin búin að vera bara ljómandi góð. Við Jón Einar buðum Beggu í mat á föstudagskvöldið. Ég keypti inn í matinn en var svo upptekin fram eftir þannig að Jón Einar sá um eldamennskuna. Það þarf náttúrlega ekki að taka það fram að hann stóð sig með stakri prýði og vippaði þarna fram einu stykki frábærri máltíð. Eina sem ég sá um í þessari eldamennsku var sósan!! Hmmm... en hún var líka ljómandi góð sko!!
Á laugardaginn fórum við í fertugsafmæli til frænda míns. Jón Einar fékk stórfjölskylduna í andlitið í einum skammti þar!! Stóðst þá eldraun með prýði líka!! Ég fékk allavega fullt af ábendingum um að "halda í piltinn"!!! Þannig að ég ætla að stefna að því...
Nú, í framhaldi af fertugsafmælinu fórum við í innflutningsteiti til EMS og Davids. Það stopp varð nú kannski í styttri kantinum... En hei... maður kom þó smá!! Þau skötuhjú búa bara vel og eru búin að koma sér ljómandi huggulega fyrir. -Gaman að koma og ég þakka fyrir mig... já og okkur!! (Sorrí.. ég er bara enn að venjast þessu með fleirtöluna!!)

En... nú er kominn háttatími! Búið að ganga frá endunum á englinum sem ég var að sauma... og það tekur því ekki að byrja á nýjum þar sem klukkan er jú löngu orðin nótt!!

Berglind
Ella Maja
Hallveig
Júlíana

Átakið -er í lööööngu fríi

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com