« Home | Meistari Megas... Hefur einhver velt því fyrir sér... » | Merkilegt hvað tónlistarsmekkur manns breytist með... » | Jæja... Þá er ég loksins orðin innvígður Ólafsfirð... » | Ó hvað ég er aktívur bloggari!! Þetta er einmitt á... » | Jæja, ég er að spá í að lýsa því hér með yfir að é... » | Þegar ég vaknaði í dag var afmælisdagurinn hennar ... » | Samskipti mannanna eru skemmtilegt viðfangsefni! H... » | Nú er ég búin að finna eitt út! Það kemur ekkert n... » | Sko mig! Ég mundi hvernig átti að fara aftur hinga... » | Jahá... Svo að það er þannig sem þetta virkar! Nú ... » 

mánudagur, mars 31, 2003 

Dagurinn í dag var afskaplega góður dagur þrátt fyrir að vera mánudagur með heila vinnuviku framundan!!
Eftir að vinnudegi lauk kom ég heim og fékk kærkomið símtal frá aðstoðarskólastjóra við skóla í bænum sem ég er búin að setja mig í samband við. Sá var að spyrja mig hvort ekki væri möguleiki á því að við gætum hist til að fara yfir stöðu mála hjá þeim og sjá hvort við gætum ekki komist að einhverju samkomulagi varðandi kennslu næsta vetur... Og það verður að segjast að þetta kom sérstaklega ánægjulega á óvart þar sem þetta er annar af tveimur skólum á höfuðborgarsvæðinu sem ég er mjög spennt fyrir... Þessi ágæti skóli er nefnilega þekktur fyrir að vera með mjög metnaðarfullt skólastarf, góðan aga og gott félagslíf fyrir nemendur. Og hvað heitir svo þessi ágæta menntastofnun? Hér er sem sagt verið að ræða um gagnfræðaskólann í Garðabæ sem heitir Garðaskóli!!!!! Og sá sem hringdi kæru vinir var hvorki meira né minna en Þröstur aðstoðarskólastjóri... (Jamm...hinn eini sanni Smjörvi!!!) Gunnlaugur gamli skólastjóri er hættur þar og annar tekinn við stýrinu í brúnni. Það er maður sem er ekki af verri endanum og ég og vinkonur mínar þekkjum líka, Ragnar Gíslason... (Þetta er farið að vera eins og kynning á handboltaliði hérna!!!) Þannig að maður er kannski bara kominn í hring!! Búin að vera nemandi í öllum skólum í Garðabæ... og nú kannski að fara að kenna í einum þeirra...!!

Svo geri ég mér háar vonir um að vera komin í gírinn fyrir sumarið. Ég fór í göngutúr hér um helgina við annan mann og fann þá mér til skelfingar að ég var fullkomlega búin að tapa öllu sem heitir úthald og líkamlegt form!! Það er afskaplega slæmt þar sem meiningin er nú að vera dugleg í sumar við það að príla upp og niður fjöll og hinar ýmsu gönguleiðir bæði með erlenda ferðamenn sem og í einkaerindum. Það er ekki það að þetta ástand hafi komið neitt á óvart þar sem ég hef nú ekki verið sú duglegasta við hreyfinguna í vetur, leiðin í skólann er aaaafskaplega stutt og enganvegin nægjanleg til þess að halda einum eða neinum í formi þar sem hún er fullkomlega flöt. Mesta landfæðilega hækkun og lækkun er upp og niður af gangstéttinni!! Og þar sem mér leiðast íþróttamiðstöðvar alveg ósegjanlega mikið þá hefur framkvæmdasemin hvað varðar hreyfinguna ekki verið mikil.... EN..í dag tók ég ákvörðun um að segja stopp og gera eitthvað í málinu til að hreinlega andast ekki úr hreyfingarleysi... Og hvað er það sem mér þykir skemmtilegt að gera sem inniheldur hreyfingu? Jú, mér þykir afskaplega skemmtilegt að vera úti í náttúrunni og tölta mér upp á fjöll... Þannig að það varð úr að ég kom heim hitaði hér vatn, smurði mér nesti og dró fram gönguskóna sem greyin depluðu augunum og skildu ekkert í eigandanum að vera að draga þá út svona á miðjum vetri, og prílaði hér upp fjall sem heitir Garðshyrna. Ég veit svo sem ekki hvað það er hátt en í öllu falli þá var það afskaplega hressandi og það helltist yfir mig notalegheita tilfinning þar sem ég sat uppi og var að hella heitu vatni í bollann minn í snjókomu og takmörkuðu skyggni... Þvílík forréttindi að hafa aðgang að jafn fallegri náttúru og finnst hér á Íslandi. Ég hef nú svo sem sagt það áður....
Hvað er betra en að vera á fjöllum?????

| |

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com