« Home | Jahá.. helgin sko... Hvað á að segja um svona hel... » | Fólk er spegill samfélagsins og samfélagið er speg... » | Það er draugagangur á blogginu mínu!!!! Kommentar... » | Hvurslags vælutónn er þetta????? Ég setti hérna i... » | Jahá.. Haldiði að það sé ástand núna maður!!! Hún ... » | Jæja... nú bloggar maður bara á hverjum degi eins ... » | Jahá... nú hefur heldur skipast í raðir þeirra sem... » | Pr?fum ?etta me? titilinn aftur.... » | Mikið er ég nú aktívur bloggari!! Hér bætist almen... » | Ég fór í leik um helgina... Hann kallast "einstæð ... » 

fimmtudagur, nóvember 06, 2003 

Ég var að koma af alveg sérlega skemmtilegum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands!
Lét loksins verða af því að fara á kvikmyndatónleika með hljómsveitinni. Og það er -kæra fólk- eitthvað sem ég mæli með að allir geri sem allra oftast!!! Það er ansi magnað að horfa á þöglar myndir með tónlistina svona "læf" fyrir framan sig. Stórgott alveg!!

Annars hef ég lítið komið inn á síðuna frá því síðasta færsla var færð hér inn... þannig að ég hef ekki fylgst með "hagyrðingaslagnum" sem fer fram hér á síðunni sem skyldi undanfarna viku! -Þar til í kvöld.- Og ég verð bara að varpa þeirri spurningu til hlutaðeigandi hvort þá langi ekki til að koma upp á yfirborðið, upp úr klóakinu og öllu því sem því fylgir!!!!

Klókaksfnykinn finn ég hér
færðu þig lengra þangað!



Svo tók ég eftir því að það hefur enginn ruslast til að botna fyrripartinn hennar Lilju sem hún setti inn fyrir margt löngu!! -Það er sennilega of saklaus og jákvæður fyrripartur Lilja mín!!! Hér eru menn aðallega í böggi og skítkasti!!!

Krökkunum hún kennir á
kristinfræði og fleira
Hlustar bæð'og hlýðir þá
Halldór og vill fá meira!!


OK OK.. kannski ekki það besta sem ég hef látið frá mér.. en þetta er nú seinnipartur samt!!

| |

Archives

Links

Powered by Blogger
and Blogger Templates Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com